Skip to product information
1 of 1

ÚTÚRKÚ

Páskaegg hafrasúkkulaði 340g (VEGAN)

Páskaegg hafrasúkkulaði 340g (VEGAN)

Regular price 4.900 kr
Regular price Sale price 4.900 kr
Sale Sold out
Tax included.
ÚTÚRKÚ páskaeggin eru sannarlega kærkomin viðbót á íslenska markaðinn. Kakóbaunir í öllum eggjunum koma frá Suður-Ameríku og tilheyra "Fine Flavour Cacao" gæðaflokknum (sjá skilgeiningu hér að neðan). 

ÚTÚRKÚ er ekki að reyna að keppa við gömlu framleiðendurna í páskaeggjum, heldur viljum við bjóða sælkerum uppá bragðbetri, fallegri valkost.

FINE FLAVOUR CACAO (FFC)
FFC er kakó sem telst til bragðbesta kakós sem til er. Það sem einkennir kakóið er ávaxtakeimur, blóma- og jurtabragð, karamelluríkt og flókinn og vel balanseraður kakógrunnur. Einungis um 8% af kakói í heiminum fellur undir skilgreiningu á FFC.

HAFRAMJÓLKURSÚKKULAÐI 43%
Kakóbaunirnar í haframjólkursúkkulaðinu koma frá Kólumbíu og tilheyra FFC gæðaflokknum. Í stað mjólkurdufts er notast við haframjólkurduft og súkkulaðið er því algerlega vegan. Við erum verulega stolt af þessu súkkulaði því það tók okkur eitt og hálft ár að finna vegan "mjólkur"súkkulaði sem uppfyllir okkar gæðakröfur. Við erum sannfærð um að bæði grænkerar og hefðbundnir súkkulaðiunnendur munu elska þetta súkkulaði.

NAMMI INNÍ
Inni í egginu er þrenns konar vegan sælgæti - hlaup, brjóstsykur og krítar.

MÁLSHÁTTUR
Er málsháttur í egginu? Já, okkur finnst það ómissandi þáttur af íslensku páskaeggjahefðinni.

UM ÚTÚRKÚ
ÚTÚRKÚ er nýjasta viðbótin við sælkerasúkkulaði á Íslandi og hóf að framleiða súkkulaðiplötur í september 2023 Allt hráefni er af hæsta gæðaflokki og mætti í raun frekar kalla það konfekt-súkkulaði frekar en hefðbundið plötusúkkulaði. 

Páskaegg og konfekt eru nýjastu vörurnar hjá ÚTÚRKÚ og markmiðið með framleiðslunni er einfaldlega að framleiða fallegustu og bragðbestu páskegg sem í boði eru á Íslandi.

INNIHALDSLÝSING

Ingredients: Outer chocolate shell: Oat chocolate (min 43% cocoa solids):  Sugar, cocoa butter, dried gluten-free OAT powder, cocoa mass, dried rice powder, emulsifier (sunflower lecithin) and vanilla extract. Candy inside: Sugar, WHEAT flour, Molasses, WHEAT starch, Liquorice extract, Glucose syrup, Thickener (E414 - Gum arabic), Ammonium chloride (salmiak), Salt, Corn starch, Natural flavorings, Color (Vegetable charcoal/Carbon), Acidity regulators (E270, E325 - Lactic acid, Sodium lactate), Coloring foods (concentrate of black carrot, safflower, spirulina, and paprika oil extract), Glazing agent (E903 - Carnauba wax), Color (Anthocyanin extract), licorice extract, flavourings, vegetable oil (rapeseed), color (E153).

May contain traces of MILK, NUTS and SOY.

Nutrition facts pr 100g: Energy 2210 kJ / 542 kcal, fat 34g(thereof saturates 19g), carbohydrates 53g (of which sugars 37g), protein 4.6g, salt 0.02g

View full details