Skip to product information
1 of 1

ÚTÚRKÚ

Páskaegg hvítt súkkulaði 340g

Páskaegg hvítt súkkulaði 340g

Regular price 4.900 kr
Regular price Sale price 4.900 kr
Sale Sold out
Tax included.
ÚTÚRKÚ lúxus páskaeggin eru sannarlega kærkomin viðbót á íslenska markaðinn. Kakóbaunir í öllum eggjunum koma frá Suður-Ameríku og tilheyra "Fine Flavour Cacao" gæðaflokknum (sjá skilgeiningu hér að neðan). 

ÚTÚRKÚ er ekki að reyna að keppa við gömlu framleiðendurna í páskaeggjum, heldur viljum við bjóða sælkerum uppá bragðbetri, fallegri valkost.

FINE FLAVOUR CACAO (FFC)
FFC er kakó sem telst til bragðbesta kakós sem til er. Það sem einkennir kakóið er ávaxtakeimur, blóma- og jurtabragð, karamelluríkt og flókinn og vel balanseraður kakógrunnur. Einungis um 8% af kakói í heiminum fellur undir skilgreiningu á FFC.

HVÍTT SÚKKULAÐI 35%
Kakóbaunirnar í hvíta súkkulaðinu koma frá Kólumbíu. Stórir iðnframleiðendur notast oftast við bragðlaust kakó (deodorized cacao butter) í sitt hvíta súkkulaði og því finnur fólk aðeins bragðið af mjólk og sykri. Í ÚTÚRKÚ súkkulaðinu er hins vegar notast við náttúrulegt kakósmjör (non-deodorized) svo að þú finnur raunverulegt bragð af kakóbaunum í súkkulaðinu. Hjá stórum framleiðendum er kakóinnihaldið líka oft undir 30% en í þessu hvíta súkkulaði er það 35%. Kakóbaunirnar tilheyra FFC gæðaflokknum.

INNVOLS
Inni í hvíta súkkulaðiegginu eru m.a. hjúpaðar lakkrískúlur og marsipan egg.

MÁLSHÁTTUR
Er málsháttur í egginu? Já, okkur finnst það ómissandi þáttur af íslensku páskaeggjahefðinni.

UM ÚTÚRKÚ
ÚTÚRKÚ er nýjasta viðbótin við sælkerasúkkulaði á Íslandi og hóf að framleiða súkkulaðiplötur í september 2023 Allt hráefni er af hæsta gæðaflokki og mætti í raun frekar kalla það konfekt-súkkulaði frekar en hefðbundið plötusúkkulaði. 

Páskaegg og konfekt eru nýjasta viðbótin hjá ÚTÚRKÚ og markmiðið með framleiðslunni er einfaldlega að framleiða fallegustu og bragðbestu páskegg sem í boði eru á Íslandi.

View full details